Jæja, þá er sumarið á enda. Skólinn byrjar á morgun og ég er ekki frá því að ég hlakki svolítið til
Ótrúlegt að þetta sé síðasta árið, mér finnst ég hafa byrjað í Kvennó í gær. Ég er búin að fá stundatöfluna, sem lítur bara mjög vel út, og kaupa bækurnar sem eru reyndar bara tvær í bili þar sem allt hitt er "tilkynnt síðar." En ég held að þetta skólaár eigi eftir að vera frábært, finn það á mér.
Ég þarf samt að reyna að finna skipulagningu einhvers staðar í mér því ég á eftir að þurfa á henni að halda í vetur
Er bara í raunvísindafögum, engum tungumálum, félagsfræði eða svoleiðis tímaeyðslu svo það á eftir að vera mikið að læra heima
Og svo þarf náttúrulega dansinn, vinnan og ræktin að passa inní líka svo ég þarf að fara að finna þessa skipulagningu sem ég hlýt að eiga til einhversstaðar. 
En jæja, ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Þið (Magga og Brynhildur, sem eru held ég þær einu sem lesa þetta) þurfið samt ekki að örvænta því núna er komið haust sem þýðir að það verður meira leiðinlegt sem ég þarf að gera sem hefur það í för með sér að ég fæ miklu oftar óstjórnlega löngun til að blogga. Skrítið.